Viltu gerast áskrifandi?

     

Tékkar á Vesturlandi

Síðustu daga hefur 20 manna hópur tékkneskra sveitarstjórnarmanna verið í heimsókn á Vesturlandi til að kynna sér vinnu sveitarfélaganna í fjórðungnum að umhverfismálum. Ferðin er að mestu leyti kostuð af Þróunarsjóði EFTA, en Environice hefur haft veg og vanda af skipulagningunni hérlendis í samvinnu við Vaxtarsamning Vesturlands og ráðgjafarstofuna MCN í Prag.

meira...
 

 

Vottun Snæfellsness endurnýjuð

 

Á dögunum barst sveitarfélögunum fimm á Snæfellsnesi formleg tilkynning um að vottun þeirra skv. alþjóðlegum staðli Earth Check hefði verið endurnýjuð í framhaldi af úttekt sem gerð var á nesinu í byrjun maí. Snæfellsnes er eitt fjögurra svæða í heiminu sem náð hefur þessum árangri, en svæðið var upphaflega vottað á vordögum 2008.

meira...
 

 

Líparítvinnsla í Hvalfirði - Frummatsskýrsla

Sementsverksmiðjan, í samstarfi við UMÍS, hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um efnistöku í Líparítnámu 3 í landi Litlasand í Hvalfjarðarsveit. 

 

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 3. maí til 22. júní 2010 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er einnig aðgengileg hér á rafrænu formi.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 22. júní 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. 
 

 


eldri fréttir


 
  Forsíða
  Fréttir
  Um Environice
  Verkefni
  Fróðleikur
  Alþjóðasamstarf
  Mat á umhverfisáhrifum
  Útgáfa
  Fjallvegahlaup
  Hafðu samband
  Leit